Orðatiltækið:
เปลี่ยนหน้ามือเป็นหลังมือ
bplíannᶠ naaᶠ muuᴹ bpennᴹ langᴿ muuᴹ
Er notað er til að lýsa algjörri breytingu á aðstæðum og þýðir á íslensku:
„að breyta lófa í handarbak“
Það er notað í fyrstu persónu á eftirfarandi hátt:
„ég breytti alveg lófa í handarbak“
Og merkir þá að við breyttumst alveg eða lífi okkar var umturnað. Ef þú prófar að velta við hendinni þá breytist útlitið á henni og eins hvað þú getur gert með hana. Á nútíma íslensku myndum við kannski segja við svipaðar aðstæður að við höfum tekið 180 gráðu beygju.